ER ÞETTA EKKI RAUNVERULEGA MESTI ÞJÓFNAÐUR ÍSLANDSSÖGUNNAR ? ? ? ALDREI JAFN FÁIR STOLIÐ JAFN MIKLU FRÁ EINS MÖRGUM ?? ?

Ég held að Sigurður G. Guðjónsson hrl. ætti að safna eigendum Giftar að baki sér og sækja þessa menn til saka sem fóru svona að ráði sínu umboðslausir með eigur alls þessa mikla fjölda manna.

Þá er nú þetta ekki allt tapið :

 

Vísir, 04. sep. 2008 08:16

Gift tapaði 11 milljörðum frá áramótum

mynd

Fjárfestingafélagið Gift, sem varð til við slit eignarhaldsfélags Samvinnutrygginga gt fyrir um það bil ári, hefur tapað ellefu milljörðum króna frá áramótum.

Einkum á fjárfestingum í Kaupþingi og Exista. Þegar eignarhaldsfélagi Samvinnutrygginga var slitið í fyrra hétu stjórnendur Giftar umþaðbil 50 þúsund tryggingatökum að þeir fengju innan tíðar eignarhlut sinn í tryggingafélaginu endurgreiddan, og var þá talað um að meðal endurgreiðsla yrði um hundrað þúsund krónur á mann.Ekki hefur verið staðið við það og ljóst virðist vera af fyrrgreindum afkomutölum að hlutur tryggingatakanna hefur rýrnað verulega eftir að fyrirheit um endurgreiðslu var gefið.-

 

 

Eignarhaldsfélagið Samvinnutrygginga
Forsíða SamvinnutryggingaFréttatilkynningStjórnHafa sambandSpurningar og svör


Velkomin á heimasíðu
Eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga

Í júní 2007 ákvað Fulltrúaráðsfundur Eignarhaldsfélagsins Samvinnutryggingar formbreytingu á félaginu. Með breytingunni tekur nýtt hlutafélag sem hefur hlotið nafnið Gift Fjárfestingafélag ehf við öllum eignum og skuldum félagsins. Þessari vefsíðu er ætlað að koma á framfæri mikilvægum upplýsingum um breytinguna sjálfa og áhrifin sem hún hefur á eignarhald.

    Mikilvægustu breytingarnar eru meðal annars:
  • Hlutafé hins nýja félags verður skipt á milli réttindaeigenda í Eignarhaldsfélagi Samvinnutrygginga, en þeir eru fyrrum tryggingartakar Samvinnutrygginga gt og Samvinnusjóðurinn samkvæmt ákvæðum í samþykktum félagsins.
  • Hluthafar verða á fimmta tug þúsunda og eigið fé félagsins losar rúma 30 milljarða króna.
  • Eignarhlutirnir í hinu nýja félagi verða afhentir fyrrum tryggingartökum fljótlega eftir næstu áramót, áramótin 2007/2008
  • Stærstu eignir félagsins eru hlutafé í Exista hf., íslenskum fjármálastofnunum og óbeinn eignarhlutur í tæpum þriðjungs hlut í Icelandair Group hf í gegnum Langflug ehf.
  • Verkefni skilanefndarinnar er að skipta hlutunum í Gift fjárfestingarfélagi ehf. á milli þessara aðila sem áður áttu skilyrtan eignarétt í félaginu.
  • Við skiptalok Eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga sem áætlað er að ljúki á fyrri hluta árs 2008, munu á fimmta tug þúsunda fyrrum viðskiptamanna Samvinnutrygginga g.t. verða orðnir hluthafar í Gift fjárfestingarfélagi ehf.

Þeir sem vilja afla sér frekari upplýsinga um málið er bent á að lesa fréttatilkynninguna í heild sinni hér á vefsíðunni eða hafa samband við Benedikt Sigurðsson framkvæmdastjóra gegnum netfangið benedikt@str.is eðaí síma 533 4700


mbl.is Verðmæti Giftar hefur rýrnað mikið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Viktor Úlfarsson

Að vera umboðslaus að sýsla með 30 milljarða sem einhver annar á hlýtur að vera stærsti þjófnaður sögunnar.  Á fjármálaeftirlitið ekki að negla þessa menn?  Þarna var verið að ganga frá heilu tryggingarfélagi.

Sigurður Viktor Úlfarsson, 15.10.2008 kl. 14:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband