29.6.2008 | 19:14
ENDURTEKNIR BRANDARAR ! ! ! ! ! !
Það er með ólíkindum að fréttamenn skuli telja það frétt að einhverjir hafi verið gripnir á 110 -> 135 km hraða á Reykjanesbrautinni. Á þessari braut er 90 km hámarkshraði og eins og kunnugt er þá táknar það í raun um 100 km hraða flestra sem þarna aka. Auka 22 -> 35 km er nú lítið mál ef það er á tvöfaldri brautinni og við góðar aðstæður.
Hefði þetta verið í ibúðargötu þá væri um fréttnæm atvik að ræða.
Er lögreglan búin að finna einhverja morðingja og nauðgara, sem og barnaníðinga nýlega ? Hvernig væri að þeir einbeittu sér að því sem og að skipta sér af þeim sem aka of hægt svo að hætta stafi af og eins þeir sem aka á röngum vegarhelmingi o.s.frv. en að vera að rella í mönnum vegna svona smáræðis.
Tekinn á 134 km hraða á Reykjanesbrautinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Velkomin í hóp þeirra 0.0047 % Íslendinga sem hugsa rökrétt og skynsamlega!!
Hef aldrei verið eins sammála neinum og þér núna :)
I I (IP-tala skráð) 30.6.2008 kl. 00:53
Hjartans þakkir Ímugustur og Ingþórr. Ég hélt reyndar í bjartsýni minni að værum fleiri en 0,0047 % !
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 30.6.2008 kl. 01:17
Já ég er sammála upp að vissu marki. eða reyndar flestu.
Mér finnst að þeir eigi að láta stóru göturnar vera og fara frekar í barnahverfin. Ég sé aldrei lögguna mæla þar. Bara á þessum stærstu götum. Frekar glatað að mér finnst. Ég fór tildæmis og rúntaði 2 hringi í 30km/h hverfi og það fóru ALLIR bílarnir frammúr mér. Ekki 1 eða 2 heldur allir og ég var á rétt undir 40.
Edda Bára (IP-tala skráð) 30.6.2008 kl. 03:52
Níutíu km hámarkshraði á Reykjanesbrautinni er bæði tíma- og töluskekkja sem þarf að leiðrétta. Það er verið að búa til glæpamenn úr heiðarlegum vegfarendum. Bestu kveðjur frá ísl-ensku ökuþórunni.
Helga Guðrún Eiríksdóttir, 1.7.2008 kl. 08:46
Ósammála, hvað er að ykkur finnst ykkur Reykjanesbrautin vera svo örugg og alveg slysalaus akstur á henni að við getum hækkað hraðann upp í 110?
Ég gæti skilið ykkur ef fólk almennt kynni að keyra hana en svo er ekki og þá verða slysin.
egvania, 2.7.2008 kl. 15:14
Það eru nú búin að verða svo mörg slys þarna að mér finnst allt í lagi að vakta Reykjanesbrautina.
Hildur , 2.7.2008 kl. 18:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.